Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 24. maí 2013 15:41
Magnús Már Einarsson
Rafael Benítez tekur við Napoli
Rafael Benítez verður næsti þjálfari Napoli en þetta staðfesti Aurelio De Laurentiis forseti félagsins í samtali við ítalska fjölmiðla í dag.

Benítez mun skrifa undir tveggja ára samning við Napoli innan tíðar.

Benítez tekur við Napoli af Walter Mazzarri sem hætti á dögunum eftir að hafa stýrt liðinu í annað sætið í Serie A.

Hinn 53 ára gamli Benítez tók við Chelsea í nóvember í fyrra en ljóst var að hann myndi einungis stýra liðinu út tímabilið.

Benítez þekkir aðeins til á Ítalíu því hann tók við Inter sumarið 2010 en hætti eftir einungis nokkra mánuði í starfi.
Slapp
banner
banner
banner