ÍH 4 - 1 Víðir
1-0 Andri Geir Gunnarsson ('26)
1-1 Aron Freyr Róbertsson ('41)
2-1 Eiríkur Viljar Kúld ('58)
3-1 Eiríkur Viljar Kúld ('75)
4-1 Eiríkur Viljar Kúld ('83)
Rautt spjald: Davíð Arthur Friðriksson, Víðir ('90)
1-0 Andri Geir Gunnarsson ('26)
1-1 Aron Freyr Róbertsson ('41)
2-1 Eiríkur Viljar Kúld ('58)
3-1 Eiríkur Viljar Kúld ('75)
4-1 Eiríkur Viljar Kúld ('83)
Rautt spjald: Davíð Arthur Friðriksson, Víðir ('90)
ÍH-ogVíðir áttust við í Kaplakrika, heimavelli ÍH, í 3. deildinni í kvöld.
Leikurinn byrjaði rólega fyrstu tíu mínúturnar og liðin að þreyfa fyrir sér, Eftir það tóku ÍH-menn völdin og spiluðu glimrandi fótbolta á köflum en færin lét á sér standa, fyrir utan skot Jón Hjartar Emilssonar á 22. mínútu utarlega í teignum sem fór rétt framhjá,
Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós á 27 mínútu þegar Jón Hjörtur Emilsson sendi fyrir góða sendingu fyrir markið þar sem fyrirliðinn Andri Geir Gunnarsson kom og stangaði boltann í netið 1-0, næstu mínútur hefðu héldu leikmenn ÍH áfram að sækja en þvert gegn gangi leiksins skoraði Aron Róbertsson gott mark eftir góða sendingu innfyrir 1-1 á 41 mín,
Lokamínútur fyrri hálfleiks voru algjörlega eign Víðismanna sem fengu greinilega mikið sjálfstraust við markið, þeir náðu ekki að bæta við marki og því staðan 1-1 þegar ágætur dómari leiksins flautaði til hálfleiks,
Seinni hálfleikur byrjaði svipað og fyrri hálfleikur, leikmenn afar rólegir og lítið að gerast, það var ekki fyrr en Eríkur Kúld fyrrum leikmaður Víðis skoraði eftir varnarmistök á 59 mín og staðan því orðinn 2-1 fyrir ÍH, Eftir markið varð allur vindur úr Víðismönnum og leikmenn ÍH léku sér að gestunum síðasta hálftímann og Eríkur Kúld bætti við tveim mörkum af stuttu færi það fyrra kom á 75 mínútu og eftir frábæran sprett frá handboltamanninum Ari Magnúsi Þorgeirsyni og það síðara á 83 mín og fullkomnaði hann þrennuna,
á 93 mínútu fékk leikmaður Víðis, Davíð Friðriksson, afar heimskulegt gult spjald þegar hann komst einn innfyrir en var réttilega dæmdur rangstæður en skaut á markið þegar dómarinn var löngu búinn að flauta Davíð var nýbúin að fá gult spjald og fékk því rauða spjaldið, afar ódýrt rautt spjald en hárréttur dómur,
ÍH-menn fögnuðu afar mikilvægum sigri og erum komnir í 6 stig og hafa unnið fyrstu tvo leiki sína, en Víðismenn sitja um miðja deild með 3 stig.
Maður leiksins: Eríkur Kúld
Áhorfendur: 130



