þri 24. maí 2016 11:32
Magnús Már Einarsson
Blind: Van Gaal hefur fengið ósanngjarna meðhöndlun
Mynd: Getty Images
Daley Blind, leikmaður Manchester United, segist vera svekktur yfir því að Louis van Gaal hafi ekki fengið meiri tíma með liðið.

Blind var í hollenska landsliðinu undir stjórn Van Gaal og undanfarin tvö ár hefur hann leikið undir hans stjórn hjá Manchester United.

„Ég hef alltaf unnið vel með honum og ég hefði viljað halda því samstarfi áfram lengur," sagði Blind.

„Stjórar toppliða á Englandi eru undir meiri pressu en aðrir en síðustu sex mánuðina hefur hann ekki fengið sanngjarna meðhöndlun."

„Ég held að stjóri sem hefur afrekað svona mikið, Louis van Gaal, eigi skilið meiri virðingu."

„Jafnvel þó að mikið hafi verið skrifað um að hann muni missa starfið þá verndaði hann okkur alltaf. Það er ekki auðvelt fyrir þjálfara sem er alltaf verið að skjóta á í fjölmiðlum."

Athugasemdir
banner
banner
banner