banner
   þri 24. maí 2016 08:28
Elvar Geir Magnússon
Bróðir Abel Dhaira mun spila hér á landi
Abel Dhaira.
Abel Dhaira.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnuráð ÍBV hefur boðið markmanninum Eric Dhaira bróðir Abels heitins til landsins til þess að æfa og spila með 2. flokki félagsins og KFS sem leikur í 3. deildinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjamönnum.

Undir lok síðasta tímabils kom Abel að máli við stjórnina og langaði að taka bróður sinn með sér þegar hann kæmi aftur til landsins frá Úganda. Það var stór draumur Abels að bróðir sinn fengi að kynnast landi og þjóð sem og að æfa með 2. flokki ÍBV.

Abel var sem kunnugt er markvörður ÍBV en lést úr krabbameini fyrr á árinu.

„Eftir að Abel lést ákvað knattspyrnuráð ÍBV að bjóða Eric til landsins og dvelja hér út tímabilið. Eric hefur nýlega gert samning við félagsliðið Sona í Úganda og fengum við þá til þess að lána hann út tímabilið svo Eric fái að upplifa draum Abels. Eric sem á nokkra landsleiki með yngri landsliðum Úganda hefur nú fengið leikheimild með KFS og 2. flokki ÍBV. Eric er væntanlegur til Eyja í lok vikunnar," segir í tilkynningunni.

„Við í knattspyrnuráði ÍBV erum mjög stoltir að ná að uppfylla þennan draum Abels heitins."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner