Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. maí 2016 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Daily Mail 
Jamie Vardy er falur fyrir 20 milljónir
Mynd: Getty Images
Daily Mail heldur því fram að sérstakt samningsákvæði í nýjum samningi Jamie Vardy við Leicester City geri öðrum Meistaradeildarfélögum kleift að kaupa hann.

Samkvæmt ákvæðinu verður kaupandinn að vera í Meistaradeildinni og neyðist Leicester til að samþykkja tilboð sem hljóða upp á 20 milljónir punda eða meira.

Vardy skoraði 24 mörk í úrvalsdeildinni og skrifaði undir nýjan samning síðasta febrúar, sem veitir honum 80 þúsund pund í vikulaun.

Vardy gekk til liðs við Leicester fyrir fjórum árum, þegar hann lék fyrir utandeildarliðið Fleetwood Town. Þá kostaði hann aðeins eina milljón punda og töldu margir það of mikinn pening fyrir smávaxinn utandeildarleikmann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner