Jeannette Williams, markmaður FH var maður leikins í 1-0 sigri liðsins á KR í kvöld í Pepsi deild kvenna.
Williams var virkilega örugg í markinu og voru leikmenn KR aldrei líklegir til að koma boltanum framhjá henni.
Hún kom frá Víkingi Ó. fyrir sumarið en hún er bandarísk. Hún hefur heldur betur staðið sig vel síðan hún kom til FH og hefur ekki fengið á sig mark í deildinni ennþá en FH er nýliði í deildinni.

Lestu um leikinn: KR 0 - 1 FH
„Ég er mjög ánægð með liðið mitt, sjö stig úr þremur leikjum, tvö mörk og búnar að halda hreinu."
Hún segir góða byrjun liðsins ekki koma sér á óvart.
„Alls ekki. Liðið mitt hjálpar mér að láta þetta virka auðvelt. Þær voru margar að vinna mjög vel. Þetta er liðsheild."
Mikill vindur var í Frostaskjóli í kvöld en hún var ánægð með hvernig liðið hélt boltanum innan liðsins.
„Það var mikill vindur í dag en þegar við náðum að halda boltanum niðri, færðum við hann vel á milli og framherjarnir hreyfðu sig mikið."
Hún er spennt fyrir framhaldinu.
„Við þurfum að vinna vel á hverjum degi, við förum aldrei í leik og höldum að við töpum."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir