Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. maí 2016 15:30
Magnús Már Einarsson
Lille kaupir Eder frá Swansea (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lille hefur keypt framherjann Eder í sínar raðir frá Swansea.

Eder var á láni hjá Lille síðari hlutann á nýliðnu tímabili þar sem hann skoraði sex örk í þrettán leikjum.

Þessi portúgalski framherji kom upphaflega til Swansea frá Braga síðastliðið sumar.

Eder er í portúgalska landsliðhópnum fyrir EM í Frakklandi en hann gæti mætt sínum gamla liðsfélaga Gylfa Þór Sigurðssyni þann 14. júní næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner