„Maður er aldrei ánægður með að tapa fótboltaleikjum en svona fór þetta. Þessi keppni er einföld. Annað hvort vinnurðu eða tapar og það lið sem vinnur fer áfram og við töpuðum í kvöld,“ sagði Reynir Leósson, þjálfari HK, eftir 2-0 tap sinna manna gegn Fram í kvöld.
HK hefur ekki byrjað mótið vel og er aðeins með 1 stig eftir 3 leiki og nú dottið út úr bikarnum. „Frammistöðulega séð finnst mér byrjunin ekkert erfið. Við höfum verið að spila fína leiki hingað til. Í dag dreifðum við álaginu á hópinn og leyfðum mönnum að koma inn.“
Vindurinn lék stórt hlutverk í kvöld og olli báðum liðum vandræðum. „Það er allavega aldrei vindur þar sem við æfum og spilum inni í Kórnum þannig að þetta fór bara í reynslubankann,“ sagði Reynir léttur.
Athugasemdir