Cristiano Ronaldo neyddist til að draga sig í hlé á æfingu Real Madrid í dag vegna meiðsla.
Real Madrid mætir Atletico Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardag og spænskir fjölmiðlar velta því nú fyrir sér hvort þátttaka hans í þeim leik sé í hættu.
Ronaldo hefur verið að glíma við meiðsli á læri en hann missti af þremur leikjum í apríl vegna þeirra.
Portúgalinn var einnig tekinn af velli í hálfleik í lokaumferð La Liga á dögunum.

Ronaldo er að sjálfsögðu í portúgalska landsliðshópnum fyrir EM í sumar en þar mætir liðið Íslandi þann 14. júní.
Athugasemdir