Jack Wilshere segist ekki vilja spila á kantinum eins og hann sé oft látinn gera hjá Arsenal. Honum líði best á miðjunni og þar vilji hann spila.
Wilshere, 24 ára, missti af nánast öllu tímabilinu vegna meiðsla. Hann kom til baka í síðustu umferðunum og var þrátt fyrir það valinn framyfir ýmsa samlanda sína í landsliðsúrtak Englendinga.
Wilshere, 24 ára, missti af nánast öllu tímabilinu vegna meiðsla. Hann kom til baka í síðustu umferðunum og var þrátt fyrir það valinn framyfir ýmsa samlanda sína í landsliðsúrtak Englendinga.
„Ég hef verið að spila mikið úti á kanti hjá Arsenal. En ég er ekki kantmaður og sem betur fer virðist Roy Hodgson hafa trú á mér á miðjunni," sagði Wilshere.
„Það hjálpaði mér mikið í meiðslunum að heyra reglulega í Roy. Hann sagðist hafa trú á mér og það hjálpaði mér gríðarlega mikið andlega."
Athugasemdir