Matthijs De Ligt, leikmaður Ajax í Hollandi, er yngsti leikmaðurinn til að spila í úrslitaleik í Evrópukeppni.
De Ligt, sem er 17 ára og 285 daga gamall, er í byrjunarliði Ajax sem spilar gegn Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Liðin eigast nú við í Stokkhólmi en staðan er markalaus. De Ligt hefur verið lykilmaður hjá Ajax síðari hluta tímabils.
Hann hefur gert þrjú mörk til þessa fyrir liðið en hann spilaði einnig með unglinga- og varaliði félagsins á tímabilinu.
Athugasemdir