Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. maí 2017 17:15
Magnús Már Einarsson
Frétti á Twitter að hann fengi ekki nýjan samning
Alex og Steve Bruce á góðri stundu.
Alex og Steve Bruce á góðri stundu.
Mynd: Getty Images
Alex Bruce, varnarmaður Hull, fær ekki nýjan samning hjá félaginu. Þetta var tilkynnt á heimasíðu Hull í dag.

Alex virðist sjálfur ekki hafa fengið að vita fréttirnar áður en þær fóru á netið.

„Takk fyrir að láta mig vita!!" skrifaði Alex á Twitter og vísaði í færsluna á heimasíðu Hull.

Hinn 32 ára gamli Alex kom ekkert við sögu á nýliðnu tímabili í ensku úrvalsdeildinni og því komu fréttirnar honum kannski ekki mikið á óvart.

Alex er sonur Steve Bruce, stjóra Aston Villa. Alex lék undir stjórn Steve hjá Hull á sínum tíma.



Athugasemdir
banner
banner
banner