Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. maí 2017 10:06
Magnús Már Einarsson
Gabriel ekki með Arsenal í úrslitunum - Vandræði í vörninni
Gabriel missir af úrslitaleiknum.
Gabriel missir af úrslitaleiknum.
Mynd: Getty Images
Gabriel Paulista, varnarmaður Arsenal, missir af úrslitaleik enska bikarsins gegn Chelsea á laugardaginn.

Gabriel meiddist á hné í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi og ljóst er að hann verður frá keppni í átta vikur.

Laurent Koscielny verður í leikbanni á laugardag eftir rauða spjaldið gegn Everton um helgina.

Þá er miðvörðurinn Shkodran Mustafi líka tæpur fyrir leikinn um helgina. Mustafi fékk höfuðhögg gegn Sunderland í síðustu viku en hann var ekki með gegn Everton af þeim sökum.

Arsene Wenger, stjóra Arsenal, er því vandi á höndum en hann hefur leikið með þrjá miðverði í byrjunarliðinu að undanförnu og því koma þessi forföll á mjög slæmum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner