Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 24. maí 2017 12:06
Elvar Geir Magnússon
Gerrard og Carragher spiluðu í sigri Liverpool gegn Sydney
Gerrard í eldlínunni í morgun.
Gerrard í eldlínunni í morgun.
Mynd: Getty Images
Liverpool lauk tímabili sínu á því að vinna Ástralíumeistara Sydney 3-0 í skemmtilegum æfingaleik sem fram fór í Ástralíu í morgun.

Léttleikinn var ráðandi í leiknum sem Liverpool vann 3-0 með mörkum Daniel Sturridge, Roberto Firmino og Alberto Moreno. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Steven Gerrard, Jamie Carragher, Daniel Agger og Steve McManaman tóku allir þátt í leiknum.

Liverpool hafnaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar og fer í forkeppni Meistaradeildarinnar.



Athugasemdir
banner
banner
banner