Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. maí 2017 06:00
Stefnir Stefánsson
Marseille lætur Diaby fara
Mynd: Getty Images
Marseille ætlar ekki að endurnýja samning við Abou Diaby, en hann hefur einungs náð að leika 135 mínútur fyrir franska félagið á þessu tímabili.

Diaby sem var á mála hjá Arsenal var látinn fara frá félaginu eftir að hafa meiðst ekki nema 42 sinnum á þeim á níu árum hjá félaginu sem varð til þess að hann einungis að leika 125 leiki.

Marseille virtist hafa trú á læknateymi sínu þegar þeir gáfu honum tveggja ára samning en þeir virðast nú hafa gefist upp á Diaby sem er mikil meiðslahrúga. Hann náði einungis að leika sex leiki fyrir félagið á þessum tveimur árum.

Fróðlegt verður að sjá hvert Diaby fer næst og hvort að lukkan muni loks snúast honum í haginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner