mið 24. maí 2017 15:19
Magnús Már Einarsson
Mata líkir Zlatan við sirloin steik
Eins og sirloin steik?
Eins og sirloin steik?
Mynd: Getty Images
CNN fékk Juan Mata, leikmann Manchester United, til að bregða á leik fyrir úrslitaleikinn gegn Ajax í Evrópudeildinni í kvöld.

Mata líkir þar leikmönnum Manchester United við ýmsar matartegundir.

Mata líkti Michael Carrick við skinku, David De Gea við steiktan smokkfisk og Ander Herrera við kartöflur svo dæmi séu tekin.

Spánverjinn líkti síðan framherjanum reynda Zlatan Ibrahimovic við sirloin steik.

„Hann er gamall, klassískur, mjög kraftmikill og sterkur. Hann er
mjög reyndur og góður leikmaður með mikinn karakter og mikla ástríðu fyrir því sem hann gerir,"
sagði Mata um samanburðinn á Zlatan og sirloin steik.

Smelltu hér til að horfa á innslag CNN
Athugasemdir
banner
banner
banner