Óvenjulegt atvik átti sér stað í leik Fjölnis og Keflavíkur í 2. umferð Borgunarbikars kvenna í gærkvöldi.
Hlín Heiðarsdóttir leikmaður Fjölnis stöðvaði sókn Keflavíkur á 9. mínútu með því að toga í hár Anítu Lindar Daníelsdóttur og fékk gult spjald fyrir.
Á vef RÚV má sjá myndband af atvikinu en þar er einnig rætt við Kristin Jakobsson formann dómaranefndar KSÍ.
Kristinn segir rétt að sýna gula spjaldið en ekki rauða í þessu tilfelli.
„Ef brotið er með ofsafengnum hætti þá er það rautt spjald. Í þessu tilfelli má tala um óíþróttamannslega framkomu og við þessu eru sömu viðurlög og að stöðva sókn með peysutogi. Þannig að gult spjald er réttur dómur í þessu tilfelli," segir Kristinn við RÚV.
Smelltu hér til að sjá myndband af atvikinu
Athugasemdir