Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. maí 2017 18:22
Brynjar Ingi Erluson
Norski bikarinn: Matti Villa allt í öllu í stórsigri Rosenborg
Matthías Vilhjálmsson skoraaði tvö fyrir Rosenborg
Matthías Vilhjálmsson skoraaði tvö fyrir Rosenborg
Mynd: Rosenborg
Norska meistaraliðið Rosenborg sigraði Tynset 9-1 í 64-liða úrslitum norska bikarsins í kvöld en þar komst einn Íslendingur á blað.

Matthías Vilhjálmsson byrjaði á tréverkinu hjá Rosenborg í dag en hann kom inná í hálfleik.

Hann var búinn að vera á vellinum í eina og hálfa mínútu áður en hann skoraði. Hann bætti við öðru marki undir lok leiksins eftir sendingu frá Milan Jevtovic.

Matthías lagði einnig upp annað mark og átti þátt í tveimur öðrum, því heilt yfir frábær í leiknum.

9-1 sigur Rosenborg staðreynd og liðið er því komið áfram í 3. umferð bikarsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner