Antoine Griezmann, leikmaður Atlético Madrid á Spáni, er á leið til Manchester United á Englandi. Það er Telegraph sem greinir frá þessu í kvöld.
Griezmann hefur verið einn besti leikmaður heims síðustu tvö tímabil en hann var lykilmaður í franska landsliðinu sem komst í úrslitaleikinn á EM síðasta sumar og þá kom hann Atlético í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra.
Manchester United hefur verið á höttunum eftir honum upp á síðkastið og nú virðist liðið vera að ganga frá kaupum á honum en það er Telegraph sem greinir frá þessu.
United vann Evrópudeildina í kvöld eftir 2-0 sigur á Ajax og fer liðið því í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Griezmann sagði fyrir skömmu að það væru ágætis líkur á að hann myndi fara frá Atlético og er United sagður næsti áfangastaður.
Blaðamaður Telegraph segir að félagaskipti hans til United séu yfirvofandi og koma til með að vera tilkynnt bráðlega.
Athugasemdir