„Við gerðum okkur þægilegra fyrir með því komast strax yfir en við spiluðum bara virkilega flottan leik, “ sagði Þorsteinn Haraldson, þjálfari Breiðabliks eftir að lið hans sigraði KR 6-0 í Kópóvogi í kvöld.
„ Við ætluðum að stýra leiknum og taka frumkvæði í öllu sem var að gerast inn á vellinum. Við gerðum það, áttum virkilega góðan leik, gott spil og sköpuðum okkur fullt af tækifærum, “ sagði hann aðspurður um leikplanið í kvöld.
Þegar leið á leikinn fengu nokkrir yngri leikmenn Breiðabliks tækifæri á að spreyta sig, um það sagði Þorsteinn: „ Þetta hélt áfram að fljóta og spilið hélt áfram þokkalega. “ Að lokum var spurt hvort hann hefði eitthvað neikvætt að segja um leikinn: „ Ekki nokkurn skapaðan hlut. “
Athugasemdir