Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. maí 2017 18:00
Magnús Már Einarsson
Valdes og Guzan fara frá Middlesbrough
Victor Valdes er á förum.
Victor Valdes er á förum.
Mynd: Getty Images
Markverðirnir reyndu Victor Valdes og Brad Guzan eru báðir á förum frá Middlesbrough eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni.

Hinn 35 ára gamli Valdes var með samning í eitt ár í viðbót en hann hefur náð samkomulagi um að rifta honum.

Guzan er 32 ára gamall en hann er á leið til Atlanta United í heimalandi sínu Bandaríkjunum.

Fleiri kveðjustundir voru hjá Middlesbrough í dag en framherjinn Alvaro Negredo skrifaði stuðningsmönnum liðsins bréf á Twitter í dag þar sem hann þakkaði fyrir sig.

Negredo var á láni hjá Middlesbrough frá Valencia á nýliðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner