West Ham er nálægt því að ganga frá samningum við Pablo Zabaleta bakvörð Manchester City.
Zabaleta verður samningslaus í júní og hann er í viðræðum við West Ham.
Samkvæmt frétt Sky Sports eru viðræðurnar vel á veg komnar.
Zabaleta verður samningslaus í júní og hann er í viðræðum við West Ham.
Samkvæmt frétt Sky Sports eru viðræðurnar vel á veg komnar.
Hinn 32 ára gamli Zabaleta fær það verkefni að berjast við Sam Byram um stöðu hægri bakvarðar.
Hægri bakvörðurinn Alvaro Arbeloa var einnig á mála hjá West Ham á nýliðnu tímabili en búist er við að hann fari þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.
Athugasemdir