Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 24. maí 2017 19:24
Brynjar Ingi Erluson
Youri Tielemans til Mónakó (Staðfest)
Youri Tielemans er kominn til Mónakó
Youri Tielemans er kominn til Mónakó
Mynd: Getty Images
Franska meistaraliðið AS Mónakó hefur fest kaup á belgíska miðjumanninum Youri Tielemans frá Anderlecht. Franska félagið staðfesti kaupin í kvöld.

Tielemans, sem er 20 ára gamall, er einn allra efnilegasti miðjumaður heims um þessar mundir en hann hefur leikið yfir 200 leiki fyrir Anderlecht.

Mónakó, sem vann frönsku deildina í ár og komst í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu, hefur nú staðfest að Tielemans er kominn til félagsins eftir stuttar viðræður.

Hann gerir fimm ára samning við franska félagið en kaupverðið er ekki gefið upp að svo stöddu.
Athugasemdir
banner
banner
banner