5. umferð Pepsi-deildar karla lauk í gær með þremur leikjum. Pakkinn þéttist enn frekar í efri hluta deildarinnar.
Eftir hverja umferð fara Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Gunnar Birgisson yfir alla leikina.
Spjallað er um leikina, stemninguna, kjaftasögurnar, draumaliðsdeildina og spáð í spilin fyrir næstu leiki.
Meðal efnis: Mikið lof á Óla Stefán, Valsmenn á afturfótunum, Anton Ari ólíkur sjálfum sér, Stjörnumenn með gamla takta, Hilmar Árni og atvinnumennskan, marklínutækni á Kópavogsvelli, döpur byrjun KA, ömurlegur Akureyrarvöllur, gott stig Eyjamanna, Íslandsmeistaramöguleikar FH, Gunni giskar, Inkasso og staðan á Gylfa.
Athugasemdir