Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 31. maí 2018 09:57
Fótbolti.net
Uppboð fyrir Umhyggju - Áritaðar treyjur frá Söru og Aroni
Lýkur klukkan 12:00
Treyja Arons.
Treyja Arons.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Treyja Söru.
Treyja Söru.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net verður næstu dagana með uppboð á tveimur treyjum sem landsliðsmenn í karla og kvennaflokki hafa gefið til söfnunar fyrir langveik börn.

Uppboðinu lýkur klukkan 12:00 í dag.

Nú er þitt tækifæri til að leggja þitt af mörkum og hvetjum við þig, öll fyrirtæki sem og alls kyns stofnanir til að taka þátt og styðja við gott málefni.

Treyjurnar sem eru á uppboð eru frá landsliðsfyrirliðunum Aroni Einari Gunnarssyni og Söru Björk Gunnarsdóttur. Um er að ræða áritaðar treyjur með félagsliðum þeirra Wolfsburg og Cardiff. Treyja Wolfsburg er árituð af öllum leikmönnum en treyja Cardiff er árituð af Aroni.

Sara spilar í úrslitum Meistaradeildarinnar með Wolfsburg á morgun á meðan Aron fór upp í ensku úrvalsdeildina með Cardiff á dögunum.

Taktu þátt
Uppboðið verður hér á vefsíðu Fótbolta.net og mega öll boð berast með nafni og upphæð á netfangið [email protected]

Lokadagur uppboðsins verður föstudagurinn 1. júní og verður hætt að taka við boðum á slaginu 12:00.

Treyjunar á uppboði
Árituð Cardiff treyja frá Aroni Einari Gunnarssyni
Hæsta boð 150.000,-

Árituð Wolfsburg treyja frá Söru Björk Gunnarsdóttur
Hæsta boð 150.000,-

Um Umhyggju
Styrktarfélagið Umhyggja hefur sérhæft sig í stuðning við langveik börn alveg frá árinu 1980, þá á barnadeild Landspítalans og Landakotsspítala. Í dag koma 18 félög að aðild Umhyggju og hefur stuðningur og kraftur við langveik börn á Íslandi aldrei verið eins öflugur. Gott má þó ávalt bæta með tækjum og tólum sem og fjárhagsstuðning við forledra og börn sem glíma við langavarandi veikindi.
Athugasemdir
banner
banner