fim 24. maí 2018 07:30
Arnar Daði Arnarsson
Breiðablik og Valur gera samning við Sportabler
Markús Máni frá Sportabler og Hákon Sverrisson yfirþjálfari Breiðabliks
Markús Máni frá Sportabler og Hákon Sverrisson yfirþjálfari Breiðabliks
Mynd: Sportabler
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Raggi Óla
Breiðablik og Knattspyrnufélagið Valur hafa gert langtímasamning
við sprotafyrirtækið Sportabler. Bæði félögin hafa innleitt kerfi
Sportabler og hafa farið vel af stað.

Sportabler er íslenskt vef- og snjallsímaforrit sem gerir skipulagningu og samskipti í íþróttastarfi margfalt skilvirkari og einfaldari. Kerfið er ætlað þjálfurum, iðkendum, foreldrum, og starfsmönnum íþróttafélaga.

Breiðablik og Valur hafa undanfarna mánuði unnið í samstarfi við Sportabler að þróun forritsins og hefur notkun þess gefist afar vel.
Markmið Sportabler er að styðja við og efla skipulagt íþróttastarf
með tvennum hætti. Annarsvegar með því að auka skilvirkni í
skipulags- og samskiptamálum, og hinsvegar með því að bjóða kennsluefni í þjálfun jákvæðra persónuleikaþátta í gegnum íþróttir, þar sem æfingar t.d. í sjálfstrausti eru fléttaðar með markvissum hætti inn í íþróttastarfið. Sportabler starfar með leiðandi íþróttafélögum og stofnunum á Íslandi.

Fyrstu íþróttafélögin til að taka Sportabler Organiser í notkun voru Valur og Breiðablik. Á síðustu misserum hafa fleiri félög fylgt í kjölfarið. Sportabler hefur hlotið styrk úr Tækniþróunarsjóði Íslands, úr Lýðheilsusjóði og frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Andri Fannar Stefánsson yfirþjálfari yngri flokka karla í
knattspyrnu hjá Val er ánægður með fyrstu mánuðina.

„Sportabler einfaldar allt utanumhald íþróttastarfsins og sparar
okkur þjálfurunum mikinn tíma. Foreldrar eru betur upplýstir um
dagskrá barnanna sinna og öllum þessum dæmigerðu skilaboðum og tilkynningum um tímasetningar, staðsetningar og mætingu hefur fækkað til muna. Við sjáum marga möguleika með Sportabler og munum taka þátt í þróun kerfisins á næstu árum."


Hákon Sverrisson yfirþjálfari yngri flokka í knattspyrnu hjá Breiðablik er einnig jákvæður í garð Sportabler.

„Sportabler kerfið sparar þjálfurum okkar mikinn tíma í hverri viku við skipulagningu og samskipti í tengslum við íþróttastarfið.
Viðburðastjórnun og utanumhald um mætingu leikmanna er allt
mun skilvirkara en áður. Viðtökur foreldra og iðkenda hafa verið
mjög góðar og er fólk sammála um að Sportabler auðveldi til
muna að hafa yfirsýn yfir æfinga- og leikjaplanið."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner