fim 24. maí 2018 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Búlgaría: Hólmar í Evrópudeildina - Obertan skoraði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Levski 4 - 1 Cherno More
1-0 Gabriel Obertan ('24)
2-0 S. Bus ('39)
2-1 M. Fennouche ('56)
3-1 V. Panayotov ('74)
4-1 I. Goranov ('83, víti)

Hólmar Örn Eyjólfsson er nýlega genginn til liðs við Levski Sofia í Búlgaríu eftir góða frammistöðu á láni hjá félaginu á tímabilinu.

Hólmar og félagar kepptu úrslitaleik í dag um síðasta Evrópusætið í búlgörsku deildinni og lentu ekki í vandræðum gegn Cherno More.

Gabriel Obertan, fyrrverandi leikmaður Manchester United, skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Levski.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Hólmar tekur þátt í Evrópudeildinni en hann þótti standa sig vel þar þegar hann lék fyrir Rosenborg.
Athugasemdir
banner
banner