Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. maí 2018 05:55
Ingólfur Stefánsson
Meistaradeild kvenna í dag - Sara Björk leikur til úrslita
Mynd: Wolfsburg
Wolfsburg og Lyon mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvennaboltanum í dag.

Leikurinn sem fer fram í Kiev í Úkraínu verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 16.00.

Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins verður í eldlínunni með Wolfsburg sem geta fullkomnað þrennuna með sigri í leiknum.

Wolfsburg tryggði sér Þýskalandsmeistaratitilinn eftir 2-0 sigur á SGS Essen fyrr í mánuðinum og unnu svo þýska bikarinn um síðustu helgi eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Bayern Munchen.

Lið Lyon hefur einnig átt frábært tímabilið. Liðið vann Meistaratitilinn í Frakklandi og er komið í úrslitaleik bikarkeppninnar þar sem þær mæta PSG 31. maí.

Meistaradeild Evrópu:
16:00 Wolfsburg - Lyon (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner