fim 24. maí 2018 19:53
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-kvenna: Berglind Björg óstöðvandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 1 - 0 ÍBV
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('16)

Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur verið funheit á tímabilinu og virðist ekki geta hætt að skora.

Hún gerði eina mark leiksins er Breiðablik fékk ÍBV í heimsókn. Berglind skoraði snemma leiks eftir að Emily Armstrong kýldi fyrirgjöf beint til hennar.

Bæði lið fengu góð tækifæri til að bæta við marki en inn fór boltinn ekki og stigin fara til Kópavogsmæra.

Blikar jafna Þór/KA á toppi deildarinnar með sigrinum þar sem bæði lið eru með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. ÍBV er í fjórða sæti, með sex stig.

Fótbolti.net var að sjálfsögðu með beina textalýsingu af leiknum sem hægt er að nálgast hér.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner