Ray Anthony var kampakátur eftir 3-2 sigur gegn Stjörnunni á Samsung-vellinum. Fyrstu stig Grindavíkur í sumar og einnig fyrstu mörkin.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 3 Grindavík
"Frábær sigur, kærkomið" sagði Ray Anthony um fyrstu stigin sem Grindavík sækir á þessu tímabili.
Markaleysi hafði verið í upphafi móts en það breyttist í dag "Höfðum ekki skorað mark í þremur leikjum, varla átt skot en ég vissi að það kæmi að lokum."
Spurður um ensku systurnar sem léku sína fyrstu leiki fyrir Grindavík í dag hafði Ray þetta að segja "Þær (Rio og Steffi Hardy) sýndu að þær eru alveg þrælgóðar, við vissum svosem af því en þær voru mjög góðar hér í dag."
"Vona að þetta haldi áfram og við höldum áfram að spila eins og við spiluðum í dag."
Athugasemdir