Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. maí 2018 13:02
Elvar Geir Magnússon
Ronaldinho giftist tveimur konum í einu
Ronaldinho ásamt verðandi eiginkonum sínum.
Ronaldinho ásamt verðandi eiginkonum sínum.
Mynd: Instagram
Brasilíski glaumgosinn Ronaldinho undirbýr brúðkaup þar sem hann hyggst giftast tveimur konum í einu. Konurnar heita Priscilla Coelho og Beatriz Souza en þær hafa báðar búið heima honum í Rio síðan í desember.

Samkvæmt fréttum passar Ronaldinho sig á því að gera ekki á milli unnusta sinna og gefur þeim nákvæmlega sömu gjafirnar.

Hann fór á skeljarnar í janúar og bað þeirra beggja. Báðar bera þær trúlofunarhringi frá kappanum.

Fjölhyggja Ronaldinho er umdeild innan fjölskyldu hans en Deisi systir hans ætlar ekki að mæta í brúðkaupsveisluna sem mun fara fram í Brasilíu.

Ronaldinho var magnaður fótboltamaður. Hann vann Meistaradeildina með Barcelona 2006 en ári áður vann hann gullknöttinn sem besti leikmaður heims. Hann lagði skóna á hilluna 2015.
Athugasemdir
banner
banner
banner