Búið er að opinbera slagorðið sem prýða mun liðsrútu Íslands á HM í Rússlandi í sumar.
Á EM 2016 var slagorðið „Áfram Ísland!" en núna verður það „Látum drauminn verða að veruleika".
Á EM 2016 var slagorðið „Áfram Ísland!" en núna verður það „Látum drauminn verða að veruleika".
Það var Hyundai sem stóð fyrir kosningu og urðu þessi orð fyrir valinu í þeirri kosningu.
íslenska landsliðið er þessa daganna við æfingar hér á landi. Í dag bættust níu leikmenn við æfingahóp landsliðsins, þar á meðal Gylfi Þór Sigurðsson.
Smelltu hér til að skoða ítarlegt viðtal sem tekið var við Gylfa á æfingunni.
Lykildagar Íslands í júní
LEIKUR 2. júní Noregur (Laugardalsvöllur) - Vináttuleikur
LEIKUR 7. júní Gana (Laugardalsvöllur) - Vináttuleikur
9. júní Flogið til Rússlands (Gelendzhik)
LEIKUR 16. júní Argentína (Moskva) - HM
LEIKUR 22. júní Nígería (Volgograd) - HM
LEIKUR 26. júní Króatía (Rostov) - HM
Búið er að opinbera slagorðið sem varð fyrir valinu í kosningu sem @Hyundai_Global stóð fyrir. Þessi fallegu orð munu prýða liðsrútu @footballiceland í Rússlandi á #WorldCup #bethere pic.twitter.com/UEjDoCl7U2
— Pétur Hreinsson, FIFA (@FIFAWorldCupISL) May 24, 2018
Athugasemdir