Tony Hibbert, hinn reynslumikli varnarmaður Everton, prýðir forsíðu veiðiblaðsins vinsæla Angling Times þessa vikuna.
Hibbert veiddi risafisk á dögunum en hann er gríðarlega mikill veiðiáhugamaður og keypti sitt eigið veiðivatn á síðasta ári.
Hibbert veiddi risafisk á dögunum en hann er gríðarlega mikill veiðiáhugamaður og keypti sitt eigið veiðivatn á síðasta ári.
Golf virðist vera efst á lista flestra fótboltamanna þegar kemur að afþreyingu og áhugamáli en nokkuð er um að menn skelli sér í veiði.
Til að mynda hafa íslensku landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson og Eggert Gunnþór Jónsson nýtt sumarfríið til að taka upp sjóstöng.
Í meðfylgjandi myndbandi má fræðast meira um veiðiáhuga Hibbert.
Athugasemdir