Fotbolti.net
24.06.14 - 11:07
Magnús Már Einarsson

Alfreð til Real Sociedad á næstu dögum

Alfreð Finnbogason.

Alfreð Finnbogason.

Canon

Mynd: Instagra

Alfreð Finnbogason gæti gengið í raðir Real Sociedad í dag eða á morgun samkvæmt rétt De Telegraaf í Hollandi.

Samkvæmt fréttinni mun Real Socidad kaupa Alfreð á átta milljónir evra frá Heerenveen.
Alfreð staðfesti sjálfur í HM Messunni á Stöð 2 Sport 2 í gær að Heerenveen hafi hafnað tveimur tilboðum í sumar.

,,Þeir hafa hafnað tveimur tilboðum en það eru viðræður í gangi, þannig að þetta lítur vel út,\" sagði Alfreð í þættinum.

Hinn 25 ára gamli Alfreð var markakóngur í Hollandi á síðasta tímabili en hann hefur slegið í gegn hjá Heerenveen undanfarin tvö tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.