Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. júní 2016 21:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: ÍR-ingar við toppsætið eftir sigur á Ægi
Jón Gísli Ström heldur áfram að skora
Jón Gísli Ström heldur áfram að skora
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ægir 0 - 3 ÍR
0-1 Guðfinnur Þórir Ómarsson (´28 )
0-2 Jón Gísli Ström (´67 )
0-3 Sigurður Gísli Snorrason (´90, víti )

ÍR er komið upp að hlið Aftureldingu á toppi 2. deildar karla eftir nokkuð þægilegan sigur á Ægi í kvöld.

Guðfinnur Þórir Ómarsson skoraði fyrsta mark leiksins og kom ÍR yfir um mibik fyrri hálfleiks. Staðan var 1-0 fyrir ÍR-inga í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum skoraði Jón Gísli Ström sitt áttunda mark á tímabilinu og kom ÍR í 2-0.

Breiðholtsliðið fékk svo víti undir lokin, en úr því skoraði Sigurður Gísli Snorrason, 3-0 fyrir ÍR lokatölur í þessum leik.

ÍR er nú með 16 stig líkt og Afturelding á toppi 2. deildar karla, en Ægir er á meðan við botninn með tvö stig.

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner