Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fram, var að sjálfsögðu ánægður með sigurinn á Leikni R. í kvöld.
Frammarar lentu undir í leiknum, en komu til baka þegar leið á seinni hálfleikinn.
Frammarar lentu undir í leiknum, en komu til baka þegar leið á seinni hálfleikinn.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 1 Leiknir R.
„Það var meira fjör í seinni. Það var heldur rólegt yfir þessu, of lítið tempó í leiknum í heild sinni, og ég er svona ekkert alltof ánægður með leik minna manna í dag," sagði Ásmundur eftir leik.
„Ég er fyrst og fremst ánægður með sigurinn og við erum svona dálítið hikandi lengi vel í leiknum, þangað til að við fáum á okkur mark þá förum við kannski loksins að stíga upp."
Ásmundur fékk sömu spurningu og Kristján Guðmundsson, þjálfari Leiknis, um hvort það væri eitthvað rið í mönnum eftir þetta EM hlé.
„Hugsanlega. Þetta er náttúrulega alltaf spurning um hvernig menn koma undan svona fríi og hvort að hugurinn hjá mönnum sé í Frakklandi eða hvað. Maður vill sjá aðeins meiri ákefð í mönnum heldur en var í dag."
Frammarar hafa ekki tapað leik síðan í fyrstu umferð og Ásmundur segir það gríðarlega jákvætt.
„Það er jákvætt, að sjálfsögðu, það er jákvætt."
Viðtalið við Ásmund má í heild sinni sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir