Romelu Lukaku segir að framtíð sín sé í höndum umboðsmanns síns á meðan hann einbeitir sér að EM í Frakklandi.
Lukaku greindi frá því fyrr í sumar að hann vildi yfirgefa Everton til þess að vinna titila, en hlutirnir hafa breyst hjá félaginu með komu Ronald Koeman.
Lukaku greindi frá því fyrr í sumar að hann vildi yfirgefa Everton til þess að vinna titila, en hlutirnir hafa breyst hjá félaginu með komu Ronald Koeman.
Mino Raiola, umboðsmaður Lukaku, sagði það fyrir stuttu að góðir möguleikar væru á því að Lukaku yrði áfram hjá Everton.
Belgíski sóknarmaðurinn ætlar að leyfa Raiola að sjá um framtíð sína á meðan hann einbeitir sér að EM með Belgum.
„Það er umboðsmaður minn sem sér um þessi mál. Ég er bara einbeittur á Belgíu, og það mikilvægasta er að hjálpa liðinu mínu," sagði Lukaku.
Lukaku hefur verið orðaður við fyrrum félag sitt Chelsea og spurning hvað gerist.
Athugasemdir