Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. júní 2016 16:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Hannes einn af tíu bestu í riðlakeppninni
Icelandair
Hannes hefur verið traustur í marki Íslands
Hannes hefur verið traustur í marki Íslands
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir hjá Copa 90 hafa sett saman lista yfir tíu bestu leikmennina í riðlakeppninni á EM í Frakklandi.

Á listann kemst einn Íslendingur og það er markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

„Hannes Þór átti magnaða frammistöðu gegn Portúgal og átta vörslur hans í leiknum settu nýtt met í Evrópukeppninni," er meðal þess sem segir í myndbandinu.

Margir miðlar hafa verið að velja í lið riðlakeppninnar og er oftast einn Íslendingur í hverju liði. Það er annað hvort Hannes Þór, Ragnar Sigurðsson eða Kári Árnason sem komast í þessi lið.

Hér að neðan má sjá myndbandið frá Copa 90 í heild sinni, en auk Hannesar komast menn eins og Gareth Bale, Andres Iniesa og Dimitri Payet á listann.


Athugasemdir
banner