West Ham hefur boðið 35 milljónir punda í Michy Batshuayi, leikmann Marseille en Sky greinir frá þessu.
Batshuayi er eins og stendur með Belgum á EM en hann hefur vakið áhuga frá mörgum af stærstu liðum Evrópu.
Juventus er talið hafa boðið í hann en það var ekki eins hátt boð og West Ham kom með en Tottenham hefur líka haft augastað á honum.
Batshuayi skoraði 24 mörk fyrir Marseile á síðustu leiktíð en hann hefur gefið það út að hann muni ekki skipta um félag fyrr en eftir EM.
Athugasemdir