sun 24. júní 2018 11:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Englands og Panama: Loftus-Cheek byrjar
Dele Alli er tæpur og byrjar ekki.
Dele Alli er tæpur og byrjar ekki.
Mynd: Getty Images
Englendingar etja kappi við Panama í fyrsta leik dagsins á HM í Rússlandi. Leikurinn er spilaður í miklum hita í Nizhny Novgorod í hádeginu á þessum sunnudegi.

England getur tryggt sér farseðilinn áfram í 16-liða úrslit, ásamt Belgíu, með sigri á eftir. England vann sinn fyrsta leik á mótinu gegn Túnis, 2-1, þar sem Harry Kane skoraði bæði mörkin. Panama tapaði 3-0 gegn Belgíu í sínum fyrsta leik á HM.

England gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu frá leiknum við Túnis. Ruben Loftus-Cheek byrjar á miðjunni í stað Dele Alli, sem er búinn að vera glíma við meiðsli í síðastliðinni viku.

Loftus-Cheek átti góða innkomu gegn Túnis síðasta mánudag.

Panama er með óbreytt lið frá 3-0 tapinu gegn Belgíu.

Byrjunarlið Englands: Pickford, Trippier, Walker, Stones, Maguire, Young, Loftus-Cheek, Henderson, Lingard, Sterling, Kane.

Byrjunarlið Panama: Penedo, Murillo, Escobar, R Torres, Davis, Gomez, Godoy, Cooper, J Rodriguez, Barcenas, Perez.

Sjá einnig:
Gaupi spáir í leik Englands og Panama
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner