Nýttu tímann!
Sjöunda umferð Pepsi-deilda kvenna byrjar í dag og verða þrír leikir á dagskrá í deildinni sem virðist ætla að vera mjög spennandi í ár. Hinir tveir leikirnir í þessari umferð eru á morgun.
Þú getur gert breytingar á liði þínu í Draumaliðsdeild Toyota til klukkan 14:00 í dag en þá er klukkutími í fyrsta leik umferðarinnar
Þú getur gert breytingar á liði þínu í Draumaliðsdeild Toyota til klukkan 14:00 í dag en þá er klukkutími í fyrsta leik umferðarinnar
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Aðalverðlaunin eru glæsileg en Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum.
Leikir umferðarinnar:
Í dag:
15:00 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)
16:00 Þór/KA-Breiðablik (Þórsvöllur)
16:00 ÍBV-Grindavík (Hásteinsvöllur)
Á morgun:
19:15 KR-Stjarnan (Alvogenvöllurinn)
19:15 HK/Víkingur-Selfoss (Víkingsvöllur)
Athugasemdir