Á fréttamannafundi landsliðsins í morgun var Kári Árnason, varnarmaður íslenska landsliðsins spurður út í Rúrik Gíslason og Instagram síðu hans sem hefur vakið heimsathygli á meðan á Heimsmeistaramótið hefur farið fram.
Í gærkvöldi fékk Rúrik fylgjanda númer milljón á Instagram.
Í gærkvöldi fékk Rúrik fylgjanda númer milljón á Instagram.
„Ég er mjög ánægður fyrir hans hönd. Þetta er allt til gamans gert. Hann er ekki að einbeita sér að þessu. Eftir fótboltaferilinn fær hann líklega módelsamning," sagði Kári sem var síðan í kjölfarið spurður út í Twitter-færslu sem hann birti af landsliðinu fyrir mótið þar sem hann merkti færsluna með kassamerkinu, #sexyRurik .
Hann var spurður að því hvort hann hafi séð það fyrir að Rúrik myndi vekja svona mikla athygli fyrir fegurð sína á mótinu.
„Það er ekkert að sjá fyrir að Rúrik sé sexy, það sjá það allir. Þetta var nú ekki kveikjan að neinu, þetta var gert í gríni og ekkert meira en það," sagði Kári en hægt er að sjá Twitter færsluna hér að neðan.
Lets do this #sexyrurik pic.twitter.com/n7EcLzsRRO
— Kari Arnason (@karibestmeister) June 9, 2018
Það var Kári Árnason sem hóf #sexyrurik trendið! #fotboltinet pic.twitter.com/KgAHbEDuU8
— Fotbolti.net (@Fotboltinet) June 24, 2018
Athugasemdir