Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. júní 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Veron: Einn leikmaður getur ekki leyst öll vandamálin
Mynd: Getty Images
Argentína er aðeins með eitt stig eftir að hafa leikið tvo leiki á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi og hefur liðið fengið mikla gagnrýni sérstaklega eftir 3-0 tap gegn Króatíu.

Lionel Messi hefur ekki fundið sig á mótinu og Juan Sebastian Veron sem lék 73 leiki fyrir Argentínu á árunum 1996-2010 skilur ekki hvað er í gangi hjá Messi.

„Ég vona að þeir fari áfram í 16-liða úrslitin en það er ekki annað hægt að segja en að staðan sé erfið."

„Hvað kom fyrir Messi? Aðeins hann getur svarað því, ég vona að hann komist í gang líkt og aðrir í liðinu. Einn leikmaður getur ekki leyst öll vandamálin," sagði Veron að lokum.




Athugasemdir
banner
banner