fim 24. júlí 2014 21:10
Daníel Freyr Jónsson
1. deild: ÍA lagði Grindavík örugglega
Jón Vilhelm Ákason skoraði fyrir ÍA.
Jón Vilhelm Ákason skoraði fyrir ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 2 - 0 Grindavík
1-0 Jón Vilhelm Ákason ('45)
2-0 Garðar Bergmann Gunnlaugsson ('74)

Rautt spjald: Árni Snær Ólafsson ÍA ('90, ÍA)

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/game.php?action=view_game&id=1265#ixzz38QG47mQg

ÍA heldur sæti sínu í 2. sæti 1. deildar eftir að hafa lagt Grindavík að velli í kvöld, 2-0.

Jón Vilhelm Ákason og Garðar Bergmann Gunnlaugsson sáu um markaskorun Skagamanna í kvöld, en fyrir leikinn í kvöld hafði íA tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum.

Fyrr í kvöld komst Þróttur R. upp fyrir ÍA í 2. sætið með sigri á KA, en ÍA er nú komið upp fyrir Þrótt að nýju á markatölu. Bæði lið hafa 24 stig eftir 13 leiki og eru þremur stigum á eftir Leikni, sem á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner