Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. júlí 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Atli Freyr framlengir við Stjörnuna
Mynd: Stjarnan
Atli Freyr Ottesen Pálsson kantmaður hjá Stjörnunni hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Atli Freyr er 19 ára, fæddur 1995.

Atli er einn af allra efnilegustu leikmönnum Stjörnunnar. Atli Freyr eða "Pepsi-King" eins og Stjörnumenn kalla hann var lykilmaður í íslandsmeistaraliði 2. flokks á síðasta ári.

Í sumar hefur hann spilað sex leiki í Pepsi deildinni, spilað tvo bikarleiki og tvo leiki í Evrópukeppni.

,,Stjórn knattspyrnudeildar Stjörnunnar er gríðarlega ánægð með að hafa tryggt sér þjónustu kantmannsins eldfljóta næstu árin og fagnar því ákaft hversu margir öflugir drengir eru að koma upp úr barna og unglingastarfi félagsins," segir í tilkynningu frá Stjörnunni.
Athugasemdir
banner
banner