Gareth Bale segir að kaup Real Madrid á James Rodriguez sýni að La Liga sé besta deild í heimi í dag.
Real Madrid keypti James á 63 milljónir punda í vikunni og eftir að hafa spilað eitt tímabil á Spáni telur Bale að spænska deildin sé sú besta.
Real Madrid keypti James á 63 milljónir punda í vikunni og eftir að hafa spilað eitt tímabil á Spáni telur Bale að spænska deildin sé sú besta.
,,Að mínu mati er spænska deildin mest spennandi. Bestu leikmenn í heimi eru hér," sagði Bale.
,,Barcelona og Real Madrid eru alltaf í Meistaradeildinni og vinna þá keppni eða eru nálægt því."
,,Enska úrvalsdeildin er frábær. Hún er mjög nálægt en við erum að fá bestu leikmennina í La Liga og það gerir meira spennandi að spila í henni."
Athugasemdir