,,Ég er mjög sáttur eftir þennan leik. Heilt yfir spiluðum mjög vel," sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA eftir 2-0 sigur liðsins á Grindavík í kvöld.
,,Færin sem við sköpuðum næstum því einn tugur og þetta var bara sanngjarnt. Ég er í skýjunum með þetta."
,,Grindavík er með frábært lið og staða þeirra í deildinni gefur ekki til kynna hversu góðir þeir eru. Þeir eru frábærir í fótbolta en við vildum þetta meira og það skóp þennan sigur."
Gunnlaugur segir að Skagamenn séu að skoða það að styrkja hópinn áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.
,,Við útilokum það ekkert. Það er ekkert í hendi en það verður að koma í ljós,"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir