FH-ingar unnu 2-0 sigur gegn Neman Grodno í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld í Kaplakrika. Þetta var seinni leikur liðanna en FH fer samtals áfram 3-1 og mætir Elfsborg í næstu umferð.
Lestu um leikinn: FH 2 - 0 Neman Grodno
„Ég er gríðarlega ánægður með að komast áfram. Þetta var ágætur sigur, við lögðum upp með að halda hreinu og það tókst. Við vissum að þeir þyrftu mark og þeir myndu koma framar á völlinn, það gerðist í fyrsta markinu," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH.
„Þeir voru góðir að halda boltanum innan liðsins og við náðum ekki að vísa þeim í þau svæði sem við vildum. Þetta voru mikil hlaup en mér fannst þeir ekki skapa neitt gríðarlega mikið."
„Mér finnst við fara sanngjarnt áfram. Við spiluðum frábæran leik úti í Hvíta-Rússlandi og vorum betri þar en í leiknum í kvöld," sagði Heimir
Hann var svo spurður út í framherjamálin. Hann vildi hvorki játa né neita þegar hann var spurður út í það hvort FH væri að reyna að fá Steven Lennon.
„Við erum búnir að vera með allan fókusinn á Evrópukeppnina og nú þurfum við að fara að skoða það. Maður getur ekki gefið upp allt."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir