„Mér fannst við eiga ágætis leik í dag fyrir utan einstaklingsmistök hér og þar," sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, eftir að lið hans tapaði 4-1 fyrir Haukum í 1. deildinni í kvöld.
Þorvaldi finnst gervigras Hauka vera lélegt.
Þorvaldi finnst gervigras Hauka vera lélegt.
„Völlurinn sem er hérna er öðruvísi en annarstaðar. Við verðum að átta okkur á einu elsku kallinn minn að að það er töluverður munur á gervigrasi og gervigrasi og það vita það allir, meira að segja Haukarnir sjálfir, þeir kvarta yfir því sjálfir. Völlurinn hér er gamall og eins og að spila á malbiki."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir