Á fjórða hundrað stuðningsmanna skoska liðsins Motherwell mæta til landsins í dag vegna leiks liðsins gegn Stjörnunni í forkeppni Evrópudeildarinnar. Þetta kemur fram á Vísi.
Motherwell fékk aðeins 150 miða fyrir sína stuðningsmenn á Samsung-völlinn og því ljóst að um 200 Skotar koma til landsins án þess að komast á völlinn.
Skotar kunna að skemmta sér og þeir miðalausu munu örugglega ekki láta sér leiðast þó þeir verði ekki í stúkunni í Garðabænum.
Stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að hita upp á All-In sportbarnum fyrir leikinn og leikurinn verður svo sýndur þar á breiðtjaldi. Búast má við að fjölmargir Skotar verði á barnum meðan á leik stendur.
Athugasemdir